
Klifurgeitin maí 2026
Klifurgeitin er hæfileikamótunarmót fyrir unga og efnilega klifrara í U15 og U13 sem vilja keppni með krefjandi leiðum. Undankeppnin fer fram í Ármúla 23 og úrslit í æfingasalnum Ármúla 21.
Fyrirkomulag fyrir U15: Undankeppni og svo úrslitaumferð
Fyrirkomulag fyrir U13: Mót með einni umferð (ekki úrslitaumferð)*
*Iðkendur á eldra ári í flokknum geta fendið undanþágu frá þjálfara til þess að taka þátt í úrslitaumferð.
Dagskrá
9:00 Húsið opnar
10:00 Undankeppni U13 og U15 (Ármúli 23) (90-120 mín, tilkynnt í byrjun umferðar)
Hádegismatur
13:00 Farið yfir úrslitahringi og hópmyndataka (Ármúli 21)
13:15 Úrslit C (sæti 13-18 í undankeppni) (Ármúli 21)
Úrslit B (sæti 7-12 í undankeppni)
Úrslit A (sæti 1-6 í undankeppni)
(klárast 14:30 ef tímaplan gengur eftir)
Mótsfyrirkomulag
Undankeppni: 30 leiðir með 6 erfiðleikastigum. Röð leiða gefur vísbendingu um erfiðleikastig (leið 1 léttust, leið 30 erfiðust). Klifrarar geta prófað leiðir í þeirri röð sem þeir kjósa og mega horfa á aðra klifra.
Úrslit (U15): Það eru samtals 18 klifrarar sem komast í þrjár úrslitaumferðir sem eru á ólíkum erfiðleikastigum. Klifarar í sætum 1-6 komast í úrslit A (erfiðasta umferðin), 7-12 í úrslit B og síðan 13-18 sæti í úrslit C. Fjöldi leiða í úrslitum eru 4 leiðir. Klifrararnir mega skoða leiðirnar áður en keppnin hefst og mega horfa á hvorn annan reyna þær. Keppt er á tíma 2 mín á/ 4 mín af með 15 sek millitíma. Stundum eru myndbönd af leiðunum (mismunandi milli móta).
Aldurshópar 2026
U13: 2014-2015
U15: 2012-2013
Athugið: Þjálfarar geta gefið undanþágu um að keppa í flokki fyrir ofan sig (sjá viðbót KÍ við alþjóðlegar reglur World Climbing).

