Stofnun nýrra félaga og deilda

Klifursamband Íslands veitir fræðslu til einstakling og hópa sem vilja stofna nýtt klifurfélag eða klifurdeild í heimabyggð. Í byrjun er hægt að setja saman aðgerðaáætlun fyrir viðkomandi samfélag og veita leiðsögn um hvernig hægt er að fjármagna verkefnið.

Hafið endilega samband ef áhugi er til staðar í ykkar nærsamfélagi að koma á laggirnar klifurfélagi eða klifurdeild innan annars íþróttafélags. HÉR getið þið sett ykkur í samband við okkur. 

Í aðgerðaráætlun um stofnun nýrra félaga eru þrír lykilviðburðir:

Fræðslufundur
Þar er farið yfir það sem þarf til þess að stofan klifurdeild/klifurfélag. Helstu þættirnir eru: Mannauður, samskipti við bæjar- eða sveitastjórn, fjármagn og íþróttaaðstaða fyrir klifuræfingar. Búin er til tímalína með þeim einstaklingum sem eru drifkrafturinn í samfélaginu á staðnum og farið yfir þau atriði sem þarf að skoða fyrir stofnun deildar og til þess að koma upp góðri æfingaraðstöðu.

Hönnunarfundur um klifurvegg og aðstöðu
Afar mikilvægt er að hafa reynda klifrara með í ráðum þegar nýjir klifurveggir eru byggðir. Bæði til þess að nýta fjármagn sem best og svo að þeir virki sem góð æfingaraðstaða. Á þessum fundi myndum við líka koma með ráðleggingar um klifurgripakaup.

Þjálfaranámskeið sem tekur mið að þekkingu og aðstöðunni sem er til staðar
Þegar aðstaðan er komin upp þá þarf að huga að íþróttastarfinu sjálfu. Til þess að byrja með er gott að vera með stutt námskeið fyrir þjálfara klifurdeildarinnar þar sem reyndir þjálfarar í greininni miðla þekkingu sinni. Þar eru líka tekin fyrir grunnþættir um leiðasmíð og hvernig hægt er að aðlaga klifurveggi að þörfum ólíkra hópa. Þannig geta nýjir þjálfarar farið af stað með barna og unglingastarf. Seinna geta þeir svo bætt við sig þjálfaramenntun með þjálfaranámskeiðum ÍSÍ eða KÍ.

Scroll to Top