Hleð Dagskrá

« Fara í Dagskrá

  • This event has passed.

Klifurgeitin og Klifurmúsin apríl 2026

11 apríl

Skráning á mótið er HÉR.

 

​Klifurmúsin

​Öll fá þátttökuverðlaun og er markmiðið að hafa gaman. Engin sæti, stig eða pallur. Klifurmúsin er tilvalin sem fyrsta klifurmót eða fyrir þau sem vilja klifra fullt af skemmtilegum krakkaleiðum í fjölskyldusalnum. Keppnin fer fram í fjölskyldusalnum í Ármúla 21.

​Keppendur verða að vera skráðir fyrirfram vegna fjöldatakmörkunar í hópum og er miðað við plássið í fjölskyldusalnum. Ef báðir hópar fyllast munum við vera í sambandi við þau sem skrá sig á biðlista og við munum reyna að koma öllum að á mótinu sem vilja taka þátt. Enginn munur er á hópum 1 og 2, aðeins tímasetningin. Keppendur mæta í afgreiðsluna í Ármúla 23 til að fá stigablöðin og staðfesta komu á mótið. Upphitunaraðstaða er í boði í Ármúla 23.

​Kl. 09:00 – 10:00 Hópur 1
​Kl. 10:30 – 11:30 Hópur 2

​////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////

​Klifurgeitin

​Klifurgeitin er hæfileikamótunarmót fyrir unga og efnilega klifrara í U15 og U13 sem vilja keppni með krefjandi leiðum. Undankeppnin fer fram í Ármúla 23 og úrslit í æfingasalnum Ármúla 21. (Mótið var áður kallað Young Guns).

​Fyrirkomulag fyrir U15: Undankeppni og svo úrslitaumferð
​Fyrirkomulag fyrir U13 og U15: Mót með einni umferð (ekki úrslitaumferð)

​Best er að iðkendur sem eru í U15 ákveði í samráði við þjálfara hvort fyrirkomulagið hentar þeim.

​Dagskrá
​8:30 Húsið opnar
​9:00 Undankeppni fyrir U15 (þau sem vilja reyna að komast í úrslit) (Ármúli 23) (90 mín)
​11:00 Undankeppni fyrir U13 og U15 (þau sem klifra án úrslitaumferðar) (Ármúli 23) (60 mín)
Ráslisti fyrir úrslit:


​Hádegismatur
​12:30 Farið yfir úrslitahringi og hópmyndataka (Ármúli 21)
​12:45 Úrslit C (sæti 17-24 í undankeppni) (Ármúli 21)
​ Úrslit B (sæti 9-16 í undankeppni)
​ Úrslit A (sæti 1-8 í undankeppni)
​(klárast 14:50 ef tímaplan gengur eftir)

​Mótsfyrirkomulag
​Undankeppni: 20 leiðir með 4 erfiðleikastigum. Röð leiða gefur vísbendingu um erfiðleikastig (leið 1 léttust, leið 20 erfiðust). Klifrarar geta prófað leiðir í þeirri röð sem þeir kjósa og mega horfa á aðra klifra.

​Úrslit (U15): Það eru samtals 24 klifrarar sem komast í þrjár úrslitaumferðir sem eru á ólíkum erfiðleikastigum. Klifarar í sætum 1-8 komast í úrslit A (erfiðasta umferðin), 9-16 í úrslit B og síðan 17-24 sæti í úrslit C. Fjöldi leiða í úrslitum eru 4 leiðir. Klifrararnir mega skoða leiðirnar áður en keppnin hefst og mega horfa á hvorn annan reyna þær. Keppt er á tíma 2 mín á/ 4 mín af með 15 sek millitíma. Stundum eru myndbönd af leiðunum (mismunandi milli móta).

​Aldurshópar 2026:
​U13: 2014-2015
​U15: 2012-2013

​Athugið: Þjálfarar geta gefið undanþágu um að keppa í flokki fyrir ofan sig (sjá viðbót KÍ við WC reglur).

Upplýsingar

Skipuleggjandi

Staðsetning

  • Klifurhúsið
  • Ármúla 23
    Reykjavík,108Iceland
    + Google Map