Klifurþing 2026 mun fara fram 25. mars

Klifursamband Íslands boðar til Klifurþings 25. mars 2026. Klifurþingið mun fara fram í sal C í húsnæði ÍSÍ, Engjavegi 6, Reykjavík, kl.19:30. 

Dagskrá þingsins samkvæmt lögum sambandsins er eftirfarandi:
1. Þingsetning. 
2. Kosning þingforseta. 
3. Kosning þingritara. 
4. Kosning 3 manna kjörbréfanefndar. 
5. Ávörp gesta. 
6. Álit kjörbréfanefndar. 
7. Skýrsla stjórnar lögð fram. 
8. Reikningar sambandsins lagðir fram til samþykktar. 
9. Fjárhagsáætlun næsta árs lögð fram til samþykktar. 
10. Gjaldskrá KÍ borin fram til samþykktar. 
11. Tillögur um breytingar á lögum og reglum KÍ teknar til umræðu og afgreiðslu.
12. Aðrar tillögur sem kynntar voru í fundarboði teknar til umræðu og afgreiðslu. 
13. Teknar fyrir tillögur og önnur mál sem komið hafa fram á þinginu og þingmeirihluti leyfir. Umræða og atkvæðagreiðsla. 
14. Kosningar:
– stjórn og varastjórn, sbr. 10. grein
– 2 skoðunarmenn reikninga.
– fastanefndir sem starfa milli klifurþinga.
– fulltrúa á Íþróttaþing ÍSÍ, skv. lögum ÍSÍ, á því ári sem Íþróttaþing ÍSÍ fer fram. 
15. Þingslit.

Kosið verður um tvo stjórnarmenn ásamt þremur varamönnum. Auk þess verður kosið í allar fastanefndir sambandsins. Framboð þurfa að berast til stjórnar KÍ a.m.k. þremur vikum fyrir þingið, 4. mars, með tölvupósti á klifursamband@klifursamband.is. Stjórn Klifursambandsins hvetur aðila um allt land til þess að íhuga framboð í stjórn en einn stjórnarmeðlimur hefur tilkynnt að hann gefi ekki kost á sér áfram. 

Málefni sem sambandsaðilar óska eftir að tekin verði fyrir á þinginu skulu berast stjórn Klifursambands Íslands a.m.k. þremur vikum fyrir þing, 4. mars, með tölvupósti á klifursamband@klifursamband.is. Á formannafundi KÍ sem fram fór 10. desember 2025 kom fram að stjórn KÍ hygðist leggja fram lagabreytingatillögur og munu þær vera sendar með seinna fundarboði. 

Klifurþingið sitja tilnenfdir fulltrúar þeirra aðila sem mynda KÍ og eru upplýsingar um fjölda fulltrúa að finna í lögum sambandsins. Kjörbréf verða send með seinna fundarboði en atkvæðafjöldi er sem hér segir: 

 

Samkvæmt lögum Klifursambands Íslands hafa kjörnir fulltrúar einir atkvæðisrétt en rétt til setu með málfrelsis- og tillögurétt hafa stjórn KÍ, heiðursformaður og heiðursfélagar, framkvæmdastjórn og framkvæmdastjóri ÍSÍ, fastráðnir starfsmenn KÍ og fulltrúar í fastanefndum KÍ. Auk þess getur stjórn KÍ boðið öðrum aðilum þingsetu og samþykkti stjórn KÍ að aðilar í öðrum nefndum en fastanefndum hefðu einnig rétt til þingsetu. 

Kveðja, 

Stjórn og starfsmenn Klifursambands Íslands

Scroll to Top