Evróputímabilið í grjóglímu endaði á EM í Barcelona. Þar voru stekustu klifrara Evrópu mættir saman á Formúlubraut borgarinnar. Sjóðandi hiti og sól einkennti mótið. Þetta setti mikinn svip á mótið og þá sérstaklega því morgunsólin skein á vegginn snemma á daginn þegar undankeppnin fór fram. Aðstæður voru mjög erfiðar og í rauninni bara erfitt fyrir íþróttafólkið að vera á sviðinu þegar verst lét. Því miður hafði þetta þau áhrif að meirihluti keppenda átt lítinn möguleika í leiðirnar og hafði það töluverð áhrif á frammistöðu hvenær í rásröðinni íþróttafólkið var hversu mörg stig þau náðu. Umferðin endaði þannig að um helmingur íþróttafólksins náði undir 20 stigum (þ.e. tveimur miðjum). Það þykir vera óvenjulegt og þýðir að umferðin hafi verið afar erfið. Mikið af liðunum voru ósátt með þær aðstæður sem voru skapaðar með því að halda mótið utanhúss á þessum tíma svona sunnarlega í Evrópu.
Þrátt fyrir að hafa endað tímabilið á svolítið súrum nótum getum við verði sátt með árangurinn sem liðið uppskar. Þetta eru augljósar framfarir frá fyrri árum og við sjáum að okkar fólk á nóg inni. Evróputímabilinu er lokið og endaði íslenska liðið í 20. sæti kvenna megin og í því 27. karla megin.
Næst á dagskrá er línuklifurtímabilið sem byrjar í ágúst.


