Silfurmerki ÍSÍ veitt á 5 ára afmæli KÍ

Klifursamband Íslands hélt uppá 5 ára afmæli sambandsins sunnudaginn 27. september. Afmælisveislan var haldin í Andrasal í húsnæði Fimleikafélagsins Björk þar sem úrslitin á fjórða móti Unbroken mótaraðarinnar fór einnig fram. Benedikt Ófeigsson, formaður KÍ, setti veisluna og stiklaði á stóru á sögu klifurfélaga á Íslandi og tilurð Klifursambandsins. Birgir Óli Snorrason, ríkjandi íslandsmeistari í grjótglímu og reynslumikill keppnisklifrari, sagði gestum frá sinni reynslu af því að keppa í klifri og þeim framförum sem hafa orðið á síðustu árum. Stjórn KÍ veitti heiðursverðlaun til þriggja aðila sem hafa komið að uppbyggingu klifuríþróttarinnar á Íslandi. Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, og Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjórn ÍSÍ og formaður heiðursnefndar ÍSÍ, veittu þessum aðilum silfurmerki ÍSÍ við tilefnið. Þau sem hlutu viðurkenningu voru Björn Baldursson, Manuela Magnúsdóttir og Elmar Orri Gunnarsson. Hér er samantekt á þeirra vinnu í þágu klifurs á Íslandi:

Björn Baldursson
– Björn var frumkvöðull í klifri á Íslandi og kom að stofnun Sportklifurfélags Reykjavíkur árið 1996, fyrirrennari Klifurfélags Reykjavíkur, með því markmiði að koma upp klifuræfingaaðstöðu og að fá klifur viðurkennt sem íþrótt hér á landi.
– Hann, ásamt nokkrum öðrum, opnaði fyrsta klifursal landsins árið 1997. Salurinn bar nafnið Vector og var í Borgartúninu.
– Björn var okkar fyrsti keppnisklifrari og varð fyrsti íslendingurinn til að taka þátt á heimsbikarmóti árið 1994 í Villach, Austurríki. Hann náði 3. sæti á NM í línuklifri árið 1995.
– Björn hefur sett mikinn tíma sem sjálfboðaliði bæði til þess að sinna starfi og byggja upp aðstöðu Klifurfélags Reykjavíkur en einnig hefur hann notað ófáa dagana til þess að sinna uppbyggingu útiklifursvæða landsins. Hann situr núna í stjórn Boltasjóðs Klifurfélags Reykjavíkur.
– Björn hefur setið undanfarin ár sem varamaður í stjórn Klifursambandsins.

Manuela Magnúsdóttir
– Manuela kom að stofnun Klifursambands Íslands árið 2021. Hún var svo kjörinn fyrsti formaður sambandsins og gegndi stöðunni árin 2021-2024.
– Manuela hefur einnig komið að starfi Klifurfélags Reykjavíkur í gegnum tíðina, m.a. sem fyrsti þjálfari afrekshóps.
– Hún hefur einnig náð góðum árangri á árum áður sem keppnisklifrari og hefur einnig náð flottum árangri í útiklifri.

Elmar Orri Gunnarsson
– Elmar kom að stofnun Klifursambandsins og sat í stjórn þess fyrst um sinn.
– Hann hefur starfað sem landsliðsþjálfari sambandsins á undanförnum árum. Jafnframt hefur hann sett mun meiri tíma í störf til sambandsins en starfssamningur hans gerir ráð fyrir.
– Elmar hefur starfað og sinnt sjálfboðavinnu fyrir Klifurfélag Reykjavíkur um árabil. Þar hann hefur starfað sem þjálfari, yfirþjálfari barna og ungmennastarfs, afreksþjálfari, leiðasmiður, yfirleiðasmiður og framkvæmdastjóri.
– Elmar hefur í mörg ár helgað líf sitt klifri á Íslandi og er óhætt að segja að íþróttin væri ekki kominn á þann stað sem hún er í dag hérlendis ef ekki væri fyrir hans eljusemi.

 

Stjórn og starfsmenn vilja þakka öllum gestum sem komu í veisluna og öllum sjálfboðaliðum sem hjálpuðu til við þennan viðburð og eins öllum sem hafa hjálpað okkur á síðustu árum. Við hlökkum til að fá að starfa með ykkur áfram um ókomin ár.

Myndir: Björgvin Hilmarsson

Scroll to Top