Unglingalandsliðið hélt til Arco á Ítalíu á dögunum þar sem heimsmeistaramót ungmenna var haldið. Keppt var bæði í línuklifri og grjótglímu.
Hópurinn saman stóð af Dagbjörtu Lilju Oddsdóttur, Daníel Inga Andrasyni, Hlyni Þorra Benediktssyni, Hrefnu Fanneyju Halldórsdóttur, Jennýju Þóru Halldórsdóttur, Sigrúnu Völu Valgerðardóttur.
Hópurinn stóð sig með prýði og má teljast fréttnæmt að í grjótglímu náðu tvö Norðurlönd að komast á blað á heimslista í liðakeppni ungmenna og var Ísland annað þeirra.
Þetta var síðasta grjótglímumót tímabilsins hjá hópnum en núna er línuklifrið formlega byrjað hjá ungmennunum.


