Íslenska landsliðið í klifri keppti á Norðurlandameistaramótinu í línuklifri í Helsinki í Finnlandi um helgina. Greipur Ásmundarson, komst þar í úrslit og hafnaði í 3. sæti.
Greipur er enginn nýgræðingur á þessu sviði. Hann varð Norðurlandameistari í U19 flokki árið 2025 og er ríkjandi Íslandsmeistari í greininni og hefur haldið þeim titli í 4 ár.
Eftir mótið sagði Greipur að hann hafði ekki verið með „háar væntingar þar sem ég var í 9. sæti í undankeppninni. En það var bara gott hugarfar fyrir mig. Ég gat bara klifrað rólegur. Svo bara hálf gert séð trúði ég því ekki að ég myndi enda á palli. Og það var bara mjög góð tilfinning.”
Jenný Þóra Halldórsdóttir, ríkjandi íslandsmeistari kvenna, náði einnig góðum árangri í U19 flokki þar sem hún tók brons.
Alls tóku 16 íslenskir keppendur þátt í mótinu, þrír í flokki fullorðinna og þrettán í ungmennaflokkum. Mótið er einn stærsti viðburður ársins hjá íslensku klifurfólki og gefur dýrmæta reynslu fyrir keppendur sem stefna á alþjóðleg stórmót.


