Jenný og Greipur vörðu íslandsmeistaratitlana í línuklifri

Íslandsmeistaramótið í Línuklifri fór fram helgina 8.-12. október og var mótið bæði stórskemmtilegt og æsispennandi. 6 keppendur í karlaflokki og 6 keppendur í kvennaflokki mættust í úrslitum á laugardagskvöldinu eftir undankeppnina sem haldin var 8.október. 

Það var húsfyllir á áhorfendapöllum mótsins sem haldið var í Línuklifuraðstöðu Klifurfélags Reykjavíkur í Miðgarði í Garðabæ. Stemningin var gríðarlega góð og voru keppendur hvattir áfram af krafti. Allir klifrararnir klifruðu vel en leiðirnar voru talsvert krefjandi. Yfirleiðarsmiður mótsins var Jakub Stec frá Bretlandi en hann hefur áður sett upp leiðir hér á landi fyrir íslandsmeistaramóið í línuklifri 2025.

Í kvennaflokki voru efstar eftir undankeppnina systurnar Jenný Þóra Halldórsdóttir og Hrefna Fanney Halldórsdóttir úr Klifurfélagi Reykjavíkur en þær börðust báðar um titilinn í gær, báðar toppuðu þær úrslitaleiðina en Jenný sem er eldri systirin stóð uppi sem Íslandsmeistari þriðja árið í röð þar sem hún fékk var ofar í undankeppninni. Í þriðja sæti var svo Saga Björgvinsdóttir en hún kemur frá Ísafirði og er uppalin þar í klifri en æfir nú með Klifurfélagi Reykjavíkur. Greipur Ásmundarson úr Klifurfélagi Reykjavíkur, Óðinn Arnar Freysson úr Björk og Daníel Ingi Andrason úr Klifurfélagi Reykjavíkur voru efstu þrír eftir undankeppni karla og enduðu þeir líka efstir á mótinu eftir mikla baráttu á veggnum. Daníel varð þriðji en hann veitti körlunum góða keppni þrátt fyrir ungan aldur, en hann er einungis 15 ára gamall. Óðinn og Greipur komust eins og í kvennaflokkinum jafnhátt í úrslitaleiðinni og duttu báðir á leið í næst seinasta gripið en Greipur varði Íslandsmeistaratitilinn í fjórða sinn þar sem hann var ofar í undankeppninni. 

Á lokadegi mótsins mættu keppendur í U15 og U17 flokkum í Miðgarð. Þar urðu Ronja Vignisdóttir og Heimir Steinn Svansson íslandsmeistarar í U15 og Hrefna Fanney Halldórsdóttir og Daníel Ingi Andrason í U17. 

Greipur er ríkjandi Norðurlandameistari U19 í línuklifri frá því í fyrra og er hann að fara að keppa á Norðurlandamótinu en þar keppir hann í fullorðinsflokki í fyrsta sinn. Stór hópur mun keppa á mótinu sem fer fram um næstu helgi í Helsinki í Finnlandi. 

Það verður spennandi að fylgjast með þessum flotta hópi keppa áfram fyrir Íslands hönd. 

 

Myndir: Björgvin Hilmarsson

Scroll to Top