Svana Bjarnason í Chamonix. Mynd: Jan Virt/World Climbing
Keppendur Klifursambandsins tóku þátt á sínum fyrstu heimsbikarmótum keppnistímabilsins á dögunum. Svana Bjarnason og Greipur Ásmundarson kepptu í línuklifri á heimsbikarmótinu í Innsbruck 17.-21. júní og Svana mætti aftur til leiks í Chamonix 10.-12. júlí. Bikarmótin í Innsbruck eru alla jafna með stærstu keppnum ársins í klifri en þar fóru líka fram umferðir í grjótglímu og paraklifri. Mótin í Chamonix eru þekkt fyrir það að hafa fallegasta umhverfið með Mont Blanc, Aiguille du Midi og fleiri tinda í bakgrunninum.
Innsbruck var fyrsta heimsbikarmót Greips og endaði hann í 74. sæti. Svana er að koma til baka eftir að hafa varið vetrinum í að jafna sig á veikindum og meiðslum. Hún endaði í 71. sæti eftir undankeppnina í Innsbruck og 68. sæti í Chamonix. Þau eru bæði skráð til keppni á fleiri mótum í línuklifri á tímabilinu og er Evrópumeistaramótið í línuklifri sem fer fram í ágúst í Laval, Frakklandi, stærsta mót ársins.
Næsta mót hjá keppendum Klifursambandsins er Evrópumeistaramótið í grjótglímu sem fer fram 17.-19. júlí. Hluti hópsins er nokkuð ungur en þeim hefur gengið vel á Evrópubikarmótum tímabilsins og þar er helst að nefna að Agnes komst í undanúrslit í Kaunas í apríl.
Keppendur KÍ á EM í grjótglímu eru eftirfarandi:
Agnes Matthildur Folkmann Helgadóttir
Garðar Logi Björnsson
Gunnar Egill Guðlaugsson
Greipur Ásmundarson
Jenný Þóra Halldórsdóttir
Lukka Mörk Blomsterberg Sigurðardóttir
Paulo Mercado Guðrúnarson


