Evróputímabilið í línuklifri byrjaði í Slóvakíu

Línuklifurtímabilið byrjaði í Zilina í norðanverðri Slóvakíu. Greipur Ásmundarson, Svana Bjarnason og Jenný Þóra Halldórsdóttir skipuðu liðið.

Jenný Þóra var á sínu fyrsta Evrópumóti í fullorðinsflokki og var þarna því líka til þess að afla sér reynslu. Hún lauk keppni í 56. sæti. Svana Bjarnason er reynslubolt liðsins og endaði í 49. sæti.

Greipur átti virkilega góða tilraun í fyrri leiðina og var meðal 22 efstu klifraranna í þeirri leið. Í seinni leiðinni rann hann til þegar hann hreyfði sig af stað úr hvíldarstöðu og endaði í 58. sæti í þeirri leið. Það dugði ekki til en efstu 24 keppenurnir komast áfram í undnaúrslit. Greipur endaði í 46. sæti en á nóg inni.

Næsta mót er í Ostermundigen í Sviss 21. til 22. ágúst.

Scroll to Top