5. Klifurþing var haldið 25. mars

5. Klifurþingið fór fram 25. mars 2026 í fundarsal í húsnæði ÍSÍ við Engjaveg í Reykjavík. Vel var mætt á þingið og voru teknar fyrir nokkuð yfirgripsmiklar lagabreytingartillögur frá stjórn Klifursambandsins. Allar tillögur stjórnar voru samþykktar en auk lagabreytinganna voru nýjar siðareglur lagðar fram til samþykktar. Í stjórn sambandsins var kosið í tvö pláss og gaf Birkir Fannar Snævarsson kost á sér til að halda áfram í stjórn og Sara Sturludóttir kom ný inn. Friðrik Már Baldursson ákvað að láta þetta gott heita eftir þrjú ár í stjórn sambandsins og þakkar stjórn og starfsfólk sambandsins honum fyrir vel unnin störf.

Stjórn Klifursambandsins fram að 6. Klifurþingi 2027 skipa:
Benedikt Gunnar Ófeigssson, formaður
Birkir Fannar Snævarsson
Guðmundur Freyr Arnarson
Harpa Þórðardóttir
Sara Sturludóttir

Ársreikningur sambandsins fyrir árið 2025 var lagður fram en sambandið kom út í hagnaði í fyrsta sinn í nokkur ár. Sambandið hefur verið að vaxa mjög hratt frá stofnun þess árið 2021 og hefur þurft að leggja út fyrir kostnaði vegna aukinna umsvifa. Nú hefur því tekist að bæta upp fyrir það tap og jafnframt stækka sjóð sambandsins til að geta brugðist við sveiflum í rekstri á komandi árum. Í desember 2025 tilkynnti Afrekssjóður ÍSÍ Klifursambandinu að það væri ekki lengur flokkað sem afrekssamband heldur fell það niður í flokk verkefnasambands. Þetta þýðir að upphæð sambandsins úr sjóðnum lækkar töluvert frá því sem búist var við. Gagnrýni á verklag við úthlutun úr sjóðnum hefur verið send til Afrekssjóðs, þá sérstaklega hversu seint þessar upplýsingar bárust sambandinu og að sambandinu hafi ekki verið tjáð hvaða viðmiðum það hefði þurft að ná því ekki var stuðst við útgefna árangurskvarða frá sjóðnum við úthlutunina. Fjárhagsáætlun sambandsins fyrir árið 2026 gerir ráð fyrir nokkru tapi þar sem sambandið var þegar búið að skipuleggja starf ársins þegar úthlutunin úr Afreksssjóði var tilkynnt og byrjað að semja við aðila eins og t.d. heilbrigðisteymi sambandsins. KÍ á bókaða fundi á næstu vikum með ÍSÍ þar sem vonast er til að skýrari mynd fáist á málin og að sambandið fái staðfest hver viðmiðin til þess að flokkast sem afrekssamband eru.

 

Scroll to Top