Agnes áfram í undanúrslit á Evrópubikarmóti í Litháen

Agnes Matthildur Helgadóttir Folkmann komst áfram í undanúrslit á Evrópubikarmóti í grjótglímu sem fram fór í Kaunas, Litháen 25.-26. apríl. Agnes varð þar með fyrsti Íslendingurinn til að komast áfram í undanúrslit á slíku móti. Agnes klifraði virkilega vel í undankeppninni og tryggði sér plássið í undanúrslitunum í 18. sæti. Leiðirnar í undanúrsslitunum voru krefjandi og endaði Agnes keppni í 24. sæti. Allar niðurstöður mótsins má finna hér

Næsta mót hjá landsliði fullorðinna er Evrópubikarmót í grjótglímu sem fer fram í Liptovsky Mikulas í Slóvakíu 16.-17. maí. 

Scroll to Top