Evrópubikarmót númer tvö í grjótglímu fór fram í Liptovsky Mikulas í Slóvakíu helgina 16.-17. maí. Sex keppendur frá Klifursambandinu tóku þátt á mótinu, Lukka Mörk Sigurðardóttir Blomsterberg og Agnes Matthildur Folkmann Helgdóttir í kvenna flokki, og Garðar Logi Björnsson, Gunnar Egill Guðlaugsson, Greipur Ásmundarson og Paulo Mercado Guðrúnarson í karlaflokki.
Mótið var mjög sterkt og alls mættu 169 keppendur á mótið, 98 í karlaflokki og 71 í kvennaflokki. Agnes náði 44. sæti með 49,7 stig og rétt á eftir henni í 46. sæti var Lukka með 49,1 stig. Til að komast í undanúrslit hefðu þær þurft að ná yfir 74,3 stigum. Garðar Logi var efstur íslenskra keppenda í karlaflokki í 61. sæti með 59,9 stig en síðasti keppandi inn í undanúrslit var með 100 stig. Af íslensku keppendunum komu á eftir honum Greipur í 77. sæti, Gunnar í 90. og Paulo í 96.
Næsta mót sem telst til stiga í Evrópubikarmótaröðinni í grjótglímu verður Evrópumeistaramótið sem fer fram í Barcelona í júlí.
Myndir: World Climbing Europe.







