Evrópumeistaramóti ungmenna lokið: Lukka Mörk í 25. sæti í U20

Hópur ungmenna frá Klifursambandi Íslands tók þátt á Evrópumeistaramóti ungmenna í grjótglímu sem haldið var í Duisburg, Þýsklandi, 8.-11. júní. Samtals voru keppendurnir átta í hópnum og með þeim var Elmar Orri Gunnarsson, landsliðsþjálfari. Bestum árangri í hópnum náði Lukka Mörk en hún endaði í 25. sæti í U20 kvenna. Samkeppnin í hennar flokki var mikil en sem dæmi hafa allar þrjár sem enduðu á palli komist áfram í undanúrslit á Evrópubikarmóti fullorðinna. Þetta er því frábær árangur.


Eftir mótið hélt hópurinn svo áfram í æfingabúðir í Innsbruck, Austurríki, og fylgdust þar með heimstbikarmótunum í grjótglímu og línuklifri.

Scroll to Top