Klifurþing

Klifursamband Íslands boðar til Klifurþings (aðalfundur Klifursambands Íslands) 10. apríl, kl.19:30 í húsakynnum ÍSÍ í Laugardal (nánari staðsetning kemur þegar nær dregur). 
 
Setu og atkvæðisrétt hafa tilnefndir fulltrúar þeirra aðila nefnda sem mynda KÍ. 
 
Kosið verður um tvo stjórnarmenn og þrjá varamenn í stjórn Klifursambandsins og skulu framboð berast á klifursamband@klifursamband.is í síðasta lagi þremur vikum fyrir þing. Auk þess verður kosið í allar fastanefndir Klifursambandsins. 
 
Málefni sem sambandsaðilar óska eftir að tekin verði fyrir á þinginu skulu berast stjórn Klifursambands Íslands a.m.k. þremur vikum fyrir þing. 
 
Stjórn og starfsmenn Klifursambands Íslands
Scroll to Top