Úrslitin á íslandsmeistaramótinu í grjótglímu 2026 fór fram 10. mars í húsnæði Fimleikafélagsins Björk í Hafnarfirði. Keppnin í bæði karla- og kvennaflokki var spennandi fram á síðustu stundu. Mótið var í beinni dagskrá á Rúv2 en þetta er í fyrsta sinn sem Íslandsmeistaramót í klifri er sjónvarpað.
Í kvennaflokki bar Agnes Matthildur Helgadóttir Folkmann sigur úr bítum eftir frábæra frammistöðu með 84,4 stig. Í öðru sæti varð Lukka Mörk Sigurðardóttir með 59,7 stig og 0,1 stigi á eftir henni varð Jenný Þóra Halldórsdóttir. Agnes keppti nokkrum dögum áður á Norðurlandameistaramótinu grjótglímu og var ekki nógu sátt með sína frammistöðu þar og var því sátt með að ná að láta það ekki á sig fá og verja titilinn annað árið í röð.
Í karlaflokki tók Birgir Óli Snorrason afgerandi forystu eftir fyrstu tvær leiðirnar sem hann kláraði báðar í fyrstu tilraun. Hann kláraði keppni að lokum með 84,6 stig. Í öðru sæti varð Garðar Logi Björnsson með 59,7 stig og í þriðja sæti varð Sólon Thorberg Helgason. Birgir Óli er reynslumikill keppandi en hafði ekki áður unnið íslandsmeistaratitilinn. Birgir sagðist hafa mætt á mótið með litlar væntingar þar sem hans þriðja barn kom í heiminn aðeins þremur dögum fyrir úrslitin og því bæði hafi svefn og æfingarútínan ekki verið líkt og hann hefði helst kosið síðustu daga. Hann vildi meina að líklega væri lágar væntingar hluti af velgenginni á úrslitunum og að hann hafi ekki fundið fyrir neinni pressu og aðalega hlakkað til þess að fá að klifra í fyrsta sinn eftir nokkura daga pásu.
Ungmennaflokkarnir U15 og U17 kepptu 28. febrúar og er hægt að horfa á þau úrslit á Youtube síðu Klifursamabndsins. Nánir úrslit frá mótinu má finna í niðurstöðusafnini her á heimasíðu Klifursambandsins.



